04. september 2007 klukkan 21:32
Var að hugsa um að blogga aftur, en núna langar mig á gæsaveiðar !! Kannski seinna
19. maí 2007 klukkan 15:16
Jamm kæru vinir, staðreyndir tala sínu máli ! Sé ekki neina andskotanns ástæðu til að halda þessu áfram svo strákurinn kveður bara til eilífðar !! Bæó
29. apríl 2007 klukkan 23:32
Var búinn að skrifa smá smá sher hérna og þá er það bara gufað upp eða eitthvað, en allavega var fínt veður í dag eða svona þolanlegt. Hiti 20 og eitthvað meira. Ég er allavega ekki að nenna að skrifa þennan pakka aftur svo ég segi bara svona, það eru ca. 25 daga í að við flytjum út hérna á Skálateignum og leggjum land undir fót (aftur), skruppum austur í liðinni viku og kíktum á nokkur kot sem koma til greina sem næsti búsetustaður. Meira af því í næstu viku, en það er svona eitt og annað að gerjast allavega.
En ég var víst búinn að lofa að koma með svarið við gátunni, og eins og sjá má á commentum síðustu færslu þá var allveg "gríðalega" góð þátttaka, eða hitt þó (er farinn að hallast að því að fólk sé fífl bara, eða þá svona ofboðselga feimið eða eitthvað) en allavega kom eitt svar og það meira að segja rétt, og var það aðaltútta austurlands sem átti rétt svar við henni
og eins og ég sagði síðast þá eru verðlaun í boði og þau ekki að verri endanum í þetta skipti, kaffi og bjór í kotinu okkar Snjósu minnar þegar við verðum búin að koma okkur fyrir, og síðast en ekki síst skoðunarferð um starfstöð BM Vallá á Reyðarfirði í lok maí ! En svo nátturlega verða veglegri verðlaun þegar þátttakan verður meiri !!
En hvað um það ég veit ekki nema það stefni í smá skilnað eða eitthvað, held að hún Snjósa mín sé gengin í FRAMSÓKN eða eitthvað svoleiðis.
Jæja bless á meðan.
20. apríl 2007 klukkan 02:05
Jæja kæru vinir og vandamenn nær og fjær, ég vil óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona að þið eigið eftir að njóta margra sólardaga næstu vikurnar. En í tilefni þess að sól fer að hækka á lofti og hitastigið að stíga (vonandi) þá hef ég ákveðið að eftir því sem tíminn leyfir mér ætla ég að setja inn eina og eina gátu handa ykkur að kljást við, og vona að þið hafið gaman af. Endilega komið með einhver svör í commentin, og hver veit nema verðlaun verði í boði fyrir þann sem svarar rétt !! En rétt svar mun svo koma fram þegar ég set inn næstu gátu !!! Njótið vel !!
PS. Sumarið leggst svakalega vel í mig ! 
18. apríl 2007 klukkan 00:59
Jæja þá er komið að því, nú liggur bara fyrir að fara að pakka niður og flytjast búferlum á milli landshluta !!!
Já stefnan er sko sett á Austurland tækifæranna, og væntanlega þá í nafla alheimsins, þ.e. á Reyðarfjörð. Reyndar er það nú ekki alveg komið á hreint hvar við komum til með að búa svona fyrst um sinn, en allavega erum við með tryggða íbúð á Egilsstöðum, en hugsanlega getur verið að það losni íbúð á Reyðarfirði um mánaðarmótin maí júni, það kemur í ljós á næstu dögum. Það yrði ennþá betri kostur. Nánari fréttir af þessu síðar !!!
Að öðrum málum, þá hefur nú eitt og annað gerst síðustu daga og vikur sem vert er að minnast á. Í vinnunni, þ.e. inni í göngum hefur ekkert skeð síðan á mið. eftir páska, en þá lentu tékkarnir í því að bora í vatnsæð sem gefur af sér sirka 2500 lítra af vatni á mín, eftirlitið hefur stöðvað alla borun þarna á meðan þeir reyna að þétta fyrir þennan leka, sem þýðir að það er frekar rólegt hjá okkur á steypustöðinni. Nú svo komu gestir til okkar í kotið um páskana, og eins og þar stendur þá er greinilega misjafn sauður í hverju fé, vegna þess að við komumst svo að því daginn eftir að þá hafði einhver þeirra labbað sér út með spilið okkar sem heitir party & co, og hefur ekkert til þess spurst síðan
og ekki nóg með það, þegar átti að fara að huga að því að græja grillið fyrir sumarið þá sáum við það að einhver óprúttinn náungi hefur ákveðið að næla sér í ódýran gaskút, allavega er hann horfinn af svölunum hjá okkur, (veit eiginlega ekki hverjum maður getur orðið treyst). Og síðast en ekki síst, svona til að leyfa ykkur að hneykslast ennþá meira, þá var verið að ferma systur konunnar núna síðasta sunnudag, og tókst það nú í alla staði mjög vel, nema hvað að þegar stelpan fer að skoða gjafirnar sínar um kvöldið kemur í ljós að það vantar allavega eitt kortið, þ.e. frá okkur. Ég meina hver leggst svo lágt að taka fermingarkort af gjafaborðinu ? Maður spyr sig ósjálfrátt hvort það geti verið að það vanti eitthvað meira ???
En allavega þá var öllu snúið á annan endann í leit að kortinu og það hefur ekkert til þess spurst.
Nú að lokum þá ætla ég bara að biðja ykkur mína kæru vini að ganga á Guðs vegum og hafa gætur á náunganum, maður getur greinilega aldrei of varlega farið í þessum vandlifaða heimi í dag !! Guð geymi ykkur.
Ps. Það minnkaði um einn á vinalistanum í kvöld, common flokksbundin framsóknarmaður hver leggst svo lágt ??
06. apríl 2007 klukkan 02:13
Jæja kæru vinir, það er víst kominn tími til að mar láti aðeins heyra frá sér hérna. Það er búið að vera nóg að gera undanfarna daga, allveg brjálað að gera í vinnunni þar sem að vandræðavaktin er kominn aftur á klakann. Jamm verkstjórinn þar á voðalega erfitt með að skilja það að við þurfum ekki að vera mættir í fjörðinn 5 tímum fyrir steypu, hann hringir á okkur sirka 6 tímum áður en hann ætlar að steypa og er farinn að stressast upp svona 2 tímum seinna. Og notabene þá er svona u.þ.b. 1 klst í það að hann sprengi og enn möguleiki á að einhver vandamál geti komið upp. En já það er víst bara eins og það er, en við þurfum víst að vera á vaktinni alla páskana, það verður ekkert frí, á að steypa alla daga nema kannski frí á sunnudag ! Ef það þykknar ekki eitthvað í buddunni við það þá er ég illa svikinn. Annars er ég nú frekar svekktur yfir því að hafa ekki tök á að fá gormana mína til mín núna um páskana, en það styttist sem betur fer í sumarið og þá koma þau nú vonandi í heimsókn, hvort sem það verður hér á Ak eða austur á Reyðarfjörð, fer eftir því hvað gerist í sambandi við álversumsóknina, allavega þá er búið að boða okkur í atvinnuviðtal á mið. Bara að vona það besta.
En ég er mikið búinn að velta því fyrir mér með Ólafsfjörð, hvort það geti verið að það sé sett á útgöngubann þar eftir kvöldmat alla daga, það er svo merkilegt með það að ef mar er á ferðinni eftir sjö á kvöldin að þá sést ekki hræða á ferðinni, nema þá heslst lögreglan. Bara svona smá pæling.
Jamm veit samt eiginlega ekki hverju ég á að bæta við þetta, hausinn er nánast tómur núna þó það sé orðin góður tími síðan ég sendi eitthvað frá mér síðast, svo ég læt þetta vera gott í bili og set meira hérna þegar kvarninar fara að snúast aftur. 
Kveðja strákurinn !!!!!!!!!!
25. mars 2007 klukkan 16:19
Fann þetta á b2 !

Bara snilld
25. mars 2007 klukkan 15:12
Jei góðann daginn dudes (and girls), dagurinn í dag var fyrirfram ákveðinn sem letidagur og ætlaði ég mér að sofa lengi lengi og helst ekki að fara fram úr rúminu, heldur hafa það bara notalegt og lesa góða bók. En margt fer öðruvísi en ætlað er, ég var vaknaður rétt um níu og þegar ég var búinn að snúa mér í nokkra hringi og reyna að sofna aftur var ákveðið að drífa sig bara á fætur ! Ætlaði að setjast fyrir framan tölvuna og dunda mér eitthvað þar, en nei haldiði að kattarskömmin hafi ekki tekið upp á því að míga í körfuna hjá sér
og það var eitt stykki Rio Grande fljótandi eftir ganginum, get sagt ykkur það að strákurinn var ekki kátur og Bastían ræfillinn átti ekki sjö dagana sæla fyrst í morgun. Byrjaði á að nota hann sem gólfmoppu á fljótið og henti honum svo í baðið, ræfillinn vissi ekkert hvað var að gerast og reyndi auðvitað að flýja hið snarasta, en hann komst nú ekki upp með það. Það var sko skrúfað frá sturtunni og hann fékk að kynnast því hvernig úrhelli fer með kattarfeldinn, aumingja kallinn ! Jæja en það þurfti auðvita að þrífa gólfið svo strákurinn lét renna vatn í fötu og græjaði skúringamoppuna og svo var tekið til hendinni. Jæja leit yfir afraksturinn og leist bara vel á svo það varð úr að stofugólfið og eldhúsið var lagt undir næst. Stólunum hent út og sópað og farið svo í skúringarnar, verki lokið á skikkanlegum tíma bara held ég og þá lá nattlega beinast við að græja uppþvottavélina, það verk var nattlega vel úr hendi leist líka og var þá loksinns komi tími á kaffibolla. Jæja þegar ég var að klára að hella upp á kaffið , haldiði ekki að mín ástkæra frú hafi birst í herbergisdyrunum (já hún var sko ákveðinn í að halda letidaginn hátíðlegan)
jæja strákurinn átti nú von á að honum yrði þá kannski hrósað fyrir uppátækið, en nei það var nú öðru nær, það átti víst ekkert að skúra gólfin fyrr en búið var að þurka úr hillunum og af borðinu, og svo var hann auðvitað hálf skammaður fyrir að baða köttinn
Jamms þetta verður sko í síðasta skipti sem helvítis skúringamoppan fer í mínar hendur, en hvað um það svona er lífið bara.
En að öðrum hlutum, þá er þessi vika í vinnunni bara búinn að vera ágæt, Pavel vinur minn sem er einn af verkstjórunum hjá tékkunum er búinn að vera kátur bara, enda er ekkert að bila núna, ekki eftir að yfirmennirnir hjá Metrostav ákváðu að kasta einhverjum þúsundköllum í að lappa upp á sprautuna hjá sér, svo hún hefur snúist nánast án vandræða síðustu sólarhringana. Svo er hann líka farinn að myndast við að læra íslenskuna !
Jæja veit ekki samt hvað ég á að segja meira, svo ég læt þetta bara duga í bili en hendi kannski inn einhverjum myndum í dag, fer eftir því hvað letidagurinn verður tekinn hátíðlega. 
Bless á meðan og hafið það gott !!! Ps. kvitt og comment takk !!!!!
25. mars 2007 klukkan 01:21
Ja ég verð bara að segja það að ég er nú bara soldið hreykinn af því hvað það hefur gengið vel að setja myndir inn á síðuna hérna. Þó það sé nú kannski ekki kominn neinn agalegur fjöldi. En það verður bætt úr því smátt og smátt, en allavega nenni ekki að skrifa meira núna, vildi bara monta mig aðeins af því hvað þetta hefur gengið brilliant vel. Kem örugglega með eina stutta ritgerð með morgininum eða svona þegar fer að líða á daginn. Bless á meðan !!!!!!!!
PS. Steinunn setti inn eina bara fyrir þig !!!!!!
23. mars 2007 klukkan 23:56